Kyrrðarstund og kirkjustarf aldraðra

Kyrrðarstund kl. 12. Súpa á eftir.

Kirkjustarf aldraðra kl. 13-16
Steinunn Leifsdóttir íþróttafræðingur kemur í heimsókn og fræðir okkur um hreyfingu og kynnir DVD-diskinn Sterk og létt í lund. Á honum er að finna leikfimisæfingar fyrir fólk á besta aldri.
Þá gefst að vanda tækifæri til að spila, líta í blöðin og prjóna og að sjálfsögðu að spjalla. Við byrjum á nýrri framhaldssögu, Hemmi Gunn, sonur þjóðar. Fyrirbænastund í lokin.

Umsjón: Ólöf Margrét Snorradóttir.

Allir velkomnir.