Göngumessur í Breiðholtinu

Það verður boðið upp á útivist, hreyfingu og góðan félagsskap í göngumessum Breiðholtssafnaðanna.  Næstu  sunnudaga sameinast söfnuðirnir í sínum árlegu messum þar sem gengið er til messu frá einni kirkju til annarrar.  Sunnudaginn 22. júní verður gengið frá Breiðholtskirkju kl. 19 til messu í Seljakirkju kl. 20.  Sunnudaginn 29. júní verður síðan hringnum lokað með því að ganga frá Seljakirkju kl. 19 og upp í Fella- og Hólakirkju til messu sem hefst kl. 20.  Boðið verður upp á kirkjukaffi í lok hverrar messu og einnig ökuferð til baka að upphafi göngunnar.  Göngumessurnar í júní hafa fest sig í sessi og notið mikilla vinsælda.  Breiðholtið býður upp á margar fallegar gönguleiðir og áhugaverða staði þar sem staldrað verður við og þess notið sem fyrir augu ber.  Allir eru hjartanlega velkomnir og ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þátttöku.

 

22. júní Breiðholtskirkja kl. 19 – Seljakirkja kl. 20

29. júní Seljakirkja kl. 19 – Fella- og Hólakirkja kl. 20