Sunnudagskólinn hefst aftur eftir sumarfrí

 

Sunnudaginn  7.september hefst barnastarfið aftur eftir sumarfrí. Við byrjum af krafti á fjölskylduguðsþjónustu kl. 11.00. Það verður mikil hátíð, söngur, Viktor kemur í heimsókn og öll börn fá kirkjubók og límmiða fyrir mætingu.

Pétur og Hreinn mæta aftur hressir og tilbúnir til starfa.

Biblíusaga – Sunnudagaskólaefnið verður kynnt.

Prestur Guðmundur Karl Ágústsson

Verið öll velkomin