Séra Guðmundur Karl Ágústsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti Eyþór Franzson Wechner. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Boðið er upp á kaffisopa eftir messu.

Sunnudagaskólinn kl. 11:00. Boðið er upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Umsjón hafa Hreinn Pálsson og Pétur Ragnhildarson og svo er brúðan Viktor sjaldan fjarri góðu gamni. Verið öll innilega velkomin.