Eldri borgarastarfið á morgun þriðjudag 16. september. 13:00 – 16:00. Kyrrðarstund kl. 12:00.  Eftir súpuna kemur Ragnhildur djákni í heimsókn og segir okkur frá nýja starfinu sínu sem framkvæmdarstjóri hjá Biblíufélaginu. Spilin, handavinna og kaffið okkar góða er á sýnum stað. Hlökkum til að sjá ykkur. Allir velkomnir.

Skráning í haustlitaferðina 23. september er hafinn. Að þessu sinni förum við austur fyrir fjall og keyrum Nesjavallaleiðina. Veitingar bíða okkar  í Þrastalundi.  Skráningablað liggur frammi í kirkjunni og hjá Kristínu djákna sími 825 0051 og á netfang. k.k@mi.is.