Það er líf og fjör í æskulýðsstarfinu hjá Fella- og Hólakirkju og alltaf fjölgar í hópnum, síðasta fimmtudagskvöld mætu 26 hressir unglingar og skemmtu sér saman. Nú styttist í  Landsmót Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar – ÆSKÞ – en það er stærsti viðburðurinn í æskulýðsstarfi kirkjunnar á hverju ári. Landsmótið verður haldið á Egilsstöðum helgina 26.-28. október og þegar hafa margir skráð sig.