Félagstarf eldri borgara þriðjudaginn 11. nóvember byrjar eins og vant er kl. 12 með kyrrðarstund. Að þessu sinni förum við stutta ferð í Þjóðminjasafn Íslands að skoða sýninguna Silfur Íslands sem sett var upp í tilefni 150 ára afmælis safnsins. Við leggjum af stað eftir súpuna kl. 13.00 þá kemur rúta að sækja okkur. Áætlað er að vera komin til baka kl. 15.00 og þá fáum við okkur kaffi og meðlæti.  Hlökkum til að sjá ykkur.