Kæru vinir í Breiðholtskirkju, Fella- og Hólakirkju og Seljakirkju !

 

Miðvikudaginn 3. desember verður boðið upp á jólaljósaferð eldri borgara í kirkjunum.

Mæting er kl. 15:30 við Breiðholtskirkju og lagt verður af stað kl. 16:00. Ekið verður um höfuðborgarsvæðið í um það bil klukkustund og jólaljósadýrðin skoðuð. Ferðinni lýkur svo í Breiðholtskirkju þar sem boðið verður uppá rjúkandi súkkulaði og meðlæti í safnaðarheimilinu.

Kostnaður vegna ferðarinnar er kr. 500,- og eru veitingar innifaldar. Greitt á brottfarardegi.

Staður: Breiðholtskirkja

Stund: Miðvikudagurinn 3. desember kl. 15:30

Verð: 500.-

Vinsamlega skráið þátttöku í síma 587 1500, fyrir 1. des.!