Jólatónleikar sönghópsins Boudoir
verða haldnir 21.desember í Fella og hólakirkju kl.17:00,
undir yfirskriftinni: JÓL Í BÆNUM.

Miðapantanir í síma 699 4686/699 1967, eða bara hér í viðburðinum.

Stjórnandi og píanóleikari: Julian Hewlett
Þar munuð þið heyra undurfagra englahljóma.
Miðaverð kr.2500

Sönghópurinn „Boudoir“ var stofnaður haustið 2013 af Julian Hewlett,og hefur hópurinn sungið víða við ýmsar uppákomur m.a. í jarðarförum, söngskemmunum, tónleikum og hlotið mjög góðar undirtektir frá áheyrendum. Hópurinn samanstendur af faglærðum söngkonum, og eingöngu konum eins og nafnið bendir til, en „Boudoir“ þýðir „Kvennadyngja“ sem er gamalt franskt orð yfir búningsherbergi eða sal er eingöngu var ætlað konum. Allar konurnar í hópnum fást á einn eða annan hátt við söng, sem einsöngvarar eða áhugasöngkonur.
Stjórnandi Julian Hewlett.