Miðvikudaginn 22. apríl kl. 18 verður frumflutt orgeltónlistarævintýrið „Lítil saga úr orgelhúsi“ í Fella- og Hólakirkju.

Ævintýrið er hugsað fyrir börn á aldrinum 4 – 8 ára og leiðir hlustandann inn í töfraheim pípuorgelsins á skemmtilegan hátt. Söguna gerði Guðný Einarsdóttir, organisti en tónlistina samdi Michael Jón Clarke, tónskáld. Sagan fjallar um orgelpípurnar sem búa í orgelhúsinu. Það gengur á ýmsu í samskiptum hjá orgelpípunum og Sif litla sem er langminnst, er orðin mjög þreytt á þessu eilífa rifrildi. Hún ákveður að fara í burtu úr orgelhúsinu og finna sér betri stað að búa á. Þá reynir nú heldur betur á hinar orgelpípurnar og þær fara að leita að Sif litlu.

Sögumaður er Bergþór Pálsson, söngvari, Guðný Einarsdóttir leikur á orgelið og myndskreytingar gerði Fanney Ósk Sizemore.

Tónleikarnir eru hluti af Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2015 www.barnamenningarhatid.is