Þann 1. september s.l. tók nýr organisti til starfa við kirkjuna. Fráfarandi organisti, Guðný Einarsdóttir lét þá af störfum að eigin ósk. Nýi organistinn er Arnhildur Valgarðsdóttir og hefur undanfarin ár starfað sem organisti við kirkjurnar í Mosfellsbæ.

Með nýjum starfsmanni koma nýjar áherslur sem verða kynntar nánar síðar. Um leið og við bjóðum Arnhildi velkomna til starfa við kirkjuna okkar þökkum við Guðnýju fyrir hennar góðu störf og óskum henni velfarnaðar í nýju starfi.