Minningartónleikar um Ágúst Ármann Þorláksson
Miðaverð er 1000 kr.
Kvöldið í ár er tileinkað Ágústi Ármanni Þorlákssyni tónlistarmanni frá Norðfirði sem lést í september árið 2011, einungis 61 árs gamall.
Stór hluti dagskrárinnar sem flutt verður, var flutt í Egilsbúð þann 13.júní sl.
Á tónleikunum flytja ættingjar og vinir Ágústar lög eftir hann
sem komu út á geisladisknum „Sól í heiði“ og var kynntur á tónleikunum í Egilsbúð.
Stofnaður hefur verið minningarsjóður í nafni Ágústar og á menningarkvöldinu verður geisladiskurinn til sölu og mun allur ágóði hans renna í minningarsjóðinn en hlutverk sjóðsins er að styrkja ungt tónlistarfólk í Fjarðabyggð. Verðið á disknum er 2000 kr.
Kaffi og konfekt í boði félagsins að lokinni dagskrá.