Eftir tæplega 14. ára starf sem sóknarprestur Fellasóknar lætur sr. Svavar Stefánsson af störfum nú 1. september að eigin ósk. Síðasta guðsþjónusta hans í embætti verður þann 28. ágúst kl. 11. Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðarsal kirkjunnar og sóknarbörn kirkjunnar fá tækifæri til að eiga góða stund saman. Sr. Svavar væntir þess að sem flest sóknarbörn komi til guðsþjónustunnar og hann fái að þakka fyrir góð ár og samskipti í kirkjunni.

Undir þessar óskir taka samstarfsfólk hans og sóknarnefndarfólk og hvetja íbúa að koma til kirkju þennan dag.