Það verður skemmtilegur þriðjudagur hjá okkur og nóg um að vera. Við byrjum með kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Vinir okkar í grafarvogskirkju koma í heimsókn kl. 13 og við tökum vel á móti þeim. Sr. Kristinn Ágúst heldur stuttan fyrirlestur um hamingjuna, Þorvaldur kemur með nikkuna og við syngjum saman. Síðan spilum við og spjöllum saman. Eigum góðan dag og njótum samverunar. Allir velkomnir