Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11:00. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur.

Það verður líf og fjör hjá okkur í sunnudagaskólanum. Marta og Ásgeir ætla að segja okkur frá öllum hljóðfærunum og ólíkum hljómum þeirra.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Kaffisopi og djús eftir stundina.