Barna-og æskulýðsstarf Fella-og Hólakirkju hefst fimmtudaginn 13. september n.k. Þá er börnum í 1-4. bekk boðið að koma í vinadeild kl. 15-16 og börnum í 5.-7. bekk boðið að koma í Leikjafjör kl. 17-18, umsjón með Leikjafjörinu hafa Marta Andrésdóttir og Ásgeir Ólafsson. Unglingadeildin fyrir 8.-10. bekk hefst sama dag kl. 20-21:30 og hafa Pétur Ragnhildarson og Ásta Guðrún Guðmundsdóttir. Síðan verður sunnudagaskóli alla sunnudaga kl. 11!