Á aðalfundi sóknarnefndar 26. apríl sl lét Benedikta Waage af formennsku nefndarinnar eftir 26 ára setu.  Benedikta hefur verið vakin og sofin yfir velferð kirkjunnar og safnaðarstarfinu og er framlag hennar ómetanlegt.  Það er ekki sjálfgefið að einhver verji stórum hluta lífs síns í sjálfboðavinnu fyrir samfélagið.  Fella- og Hólasókn þakkar Benediktu fyrir hennar óeigingjarna starf.