Vegna gildandi takmarka á samkomur var öllu helgihaldi um jól og áramót aflýst. Samkvæmt núgildandi takmörkunum mega 50 manns koma saman við sitjandi athafnir í kirkjunni. Við munum því byrja helgihald og sunnudagaskóla sunnudaginn 16. janúar n.k. kl. 11. Fyrirbænastundir verða á þriðjudögum kl. 12.

Á aðra viðburði kirkjunnar, mega einungis 20 koma saman. Við getum þess vegna ekki staðið fyrir opnu húsi fyrir eldri borgara en hefjum starfið þegar búið verður að hækka fjöldatakmarkanir og verður það auglýst þegar þar að kemur.

Barna-og æskulýðstarfið hefst með sunnudagaskóla n.k. sunnudag og fimmtudaginn 20. janúar hefst vinadeildin, litrófið og unglingastarfið.