Næsta sunnudag verður gengið frá Fella- og Hólakirkju kl. 10:00 að Breiðholtskirkju þar sem verður guðsþjónusta kl. 11:00. Þar þjónar sr. Sigurjón Árni fyrir altari og prédikar og Örn organisti leiðir tónlistina ásamt félögum úr kór Breiðholtskirkju.

Gönguguðsþjónusturnar í Breiðholti eru orðnar að áralangri hefð. Þetta eru góðar og uppbyggilegar stundir og hvetjum við Breiðhyltinga nær og fjær til að taka þátt. Þau sem treysta sér ekki í gönguna geta mætt beint í guðsþjónustuna.

12. júní er gengið frá Fella- og Hólakirkju að Breiðholtskirkju.

19. júní er gengið frá Breiðholtskirkju að Seljakirkju.

26. júní er gengið frá Seljakirkju að Fella- og Hólakirkju.