Næsta sunnudag verður gengið frá Seljakirkju kl. 10:00 að Fella- og Hólakirkju þar sem verður guðsþjónusta kl. 11:00. Þar þjónar sr. Jón Ómar Gunnarsson fyrir altari og prédikar og Arnhildur organisti leiðir tónlistina ásamt félögum úr kór Fella- og Hólakirkju. Inga J. Backman syngur einsöng. Boðið verður upp á léttar veitingar eftir messuna.

Gönguguðsþjónusturnar í Breiðholti eru orðnar að áralangri hefð. Þetta eru góðar og uppbyggilegar stundir og hvetjum við Breiðhyltinga nær og fjær til að taka þátt. Þau sem treysta sér ekki í gönguna geta mætt beint í guðsþjónustuna.

Hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn.

Titilmynd fréttarinnar tók Kristín Sigurðardóttir í fyrstu göngunni í sumar.