Næsta sunnudag verður messa kl. 17:00 í Fella- og Hólakirkju.
Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar fyrir altari og prédikar. Félagar úr kór Fella- og Hólakirkju leiða tónlistina undir stjórn Arnhildar organista.
Barnastarf í kennslustofunni á sama tíma. Umsjón hafa Nanna og Jóhanna Elísa.
Eftir stundina verður Kristín kirkjuvörður búin að útbúa léttan kvöldverð fyrir alla kirkjugesti.
Verið hjartanlega velkomin í messu og barnastarf á sunnudaginn.

Alltaf skemmtilegt í barnastarfinu.