Næsta sunnudag verður messa kl. 17 í Fella- og Hólakirkju.
Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar fyrir altari og prédikar. Félagar úr kór Fella- og Hólakirkju leiða tónlistina undir stjórn Arnhildar organista.
Barnastarf í kennslustofunni á sama tíma í umsjón Nönnu og Írisar.
Eftir messuna og barnastarfið býður Kristín kirkjuvörður upp á karrýsúpu með kjúklingi.
Verið hjartanlega velkomin á sunnudaginn.