Næsta sunnudag verður fjölskylduguðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju.

Sr. Pétur Ragnhildarson hefur umsjón með stundinni ásamt Arnari Ragnarssyni og Arnhildi organista.

Eftir stundina verður kirkjugestum boðið upp á sænskar kjötbollur að hætti Helgu kirkjuvarðar.

Verið hjartanlega velkomin á sunnudaginn kl. 17:00.