Næsta sunnudag, á fyrsta sunnudegi í aðventu, 27. nóv kl. 20:00 verður aðventukvöld í Fella- og Hólakirkju.

Prestarnir okkar leiða stundina og lesa ritningartexta og jólasögu. Kór Fella- og Hólakirkju flytur fallega og hugljúfa jólatónlist undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Matthías Stefánsson leikur á fiðlu.

Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður flytur aðventuhugvekju. Aðventukvöldið endar á samsöng við kertaljós eins og hefð er fyrir þar sem kirkjugestir synga Heims um ból.

Eftir stundina verður boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur.

Verið hjartanlega velkomin.