Næsta sunnudag verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 17:00.
Sr. Pétur Ragnhildarson leiðir stundina og með honum verður Ásta Guðrún Guðmundsdóttir og brúðan Viktoría, sem fer alltaf á kostum.
Barnakór Hólabrekkuskóla leiðir tónlistina undir stjórn Diljár Sigursveinsdóttur. Undirleikari er Guðný Einarsdóttir.
Létt og skemmtileg aðventustund sem kemur öllum í jólaskap.
Hlökkum til að sjá ykkur.