Næsta sunnudag verður guðsþjónusta kl. 17.

Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari og prédikar.

Félagar úr kór Fella- og Hólakirkju leiða tónlistina undir stjórn Arnhildar organista.

Barnastarf í kennslustofunni á sama tíma í umsjón Nönnu æskulýðsfulltrúa og Benna undirleikara.

Eftir stundina verður boðið upp á súpu að hætti Bjarkeyjar kirkjuvarðar.

Verið hjartanlega velkomin.