Á morgun verður kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjón Steinunnar djákna.

Eftir stundina verður boðið upp á sveppasúpu og brauð að hætti kirkjuvarðanna.

Í eldri borgarastarfinu verður söngstund með Arnhildi organista og félögum úr kór Fella- og Hólakirkju.

Verið hjartanlega velkomin.