Næsta sunnudag verður messa í Fella- og Hólakirkju kl. 17.

Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar.

Félagar úr kór Fella- og Hólakirkju leiða tónlistina undir stjórn Arnhildar organista.

Barnastarf í kennslustofunni á sama tíma. Dans, dans, dans á dagskránni. Nanna æskulýðsfulltrúi og Íris undirleikari taka vel á móti börnum og fjölskyldum þar.

Eftir stundina verður boðið upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu að hætti Helgu kirkjuvarðar.