Kyrrðarstund kl. 12 í umsjón Steinunnar djákna og Arnhildar organista.

Eftir stundina verður boðið upp á súpu gegn vægu gjaldi að hætti kirkjuvarðanna.

Gestur okkar í félagsstarfi eldri borgara er Hafsteinn G Einarsson, útvarpsstjóri Lindarinnar. Lindin er kristileg útvarpsstöð og ætlar að hann að segja okkur frá starfi hennar og jafnframt hvernig það er að reka útvarpsstöð á Íslandi í nútímasamfélagi og það án auglýsinga.

Verið hjartanlega velkomin.