Á morgun, 21. mars, verður kyrrðarstund kl. 12 í umsjón Steinunnar djákna.

Eftir stundina verður boðið upp á súpu að hætti kirkjuvarðanna.

Gestur okkar í eldri borgarastarfinu verður Perla Magnúsdóttir, leiðsögumaður með meiru. Með henni í för verður Gleðisveitin sem ætlar að halda uppi stuði með okkur. Skemmtileg og spennandi samverustund.

Verið hjartanlega velkomin.

Perla Magnúsdóttir er gleðigjafi af Guðs náð og ætlar að skemmta okkur á morgun

Foreldrar Perlu, Lára og Magnús eru félagar í Gleðisveitinni