Sunnudaginn 11. júní nk. verður önnur göngumessa sumarsins í Breiðholtskirkju kl. 11.

Gengið verður frá Fella- og Hólakirkju klukkan 10.00. Sr. Jón Ómar Gunnarsson predikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Breiðholtskirkju leiða safnaðarsöng undir stjórn Arnar Magnússonar organista.

Verið öll hjartanlega velkomin!