Næsta sunnudag, 18. júní kl. 11, verður gönguguðsþjónusta í Seljakirkju.

Gengið verður frá Breiðholtkskirkju kl. 10:00 til guðsþjónustu í Seljakikju kl. 11:00.

Sr. Sigurður Már Hannesson þjónar fyrir altari og prédikar.

Eftir stundina verður boðið upp á léttar veitingar.

Gönguguðsþjónusturnar í Breiðholti eru orðnar að áralangri hefð. Þetta eru góðar og uppbyggilegar stundir og hvetjum við Breiðhyltinga nær og fjær til að taka þátt. Þau sem treysta sér ekki í gönguna geta mætt beint í guðsþjónustuna.

 

18. júní er gengið frá Breiðholtskirkju að Seljakirkju.

25. júní er gengið frá Seljakirkju að Fella- og Hólakirkju.

2. júlí er gengið frá Fella- og Hólakirkju og Seljakirkju.