Í júlímánuði verður ekki helgihald á sunnudögum í Fella-og Hólakirkju. Engu að síður verða kyrrðarstundir alla miðvikudaga kl. 12 í Breiðholtskirkju og guðsþjónustur á sunnudögum kl. 11 í Seljakirkju.

Fram að Verslunarmannahelgi er ekki hefðbundinn opnunartími í kirkjunni. Hægt er að hafa samband um salaleigu og notkun á kirkjunni með því að senda tölvupóst á helga@fellaogholakirkja.is eða hringja í síma kirkjunnar s: 557-3280.

Fyrir prestsþjónustu hafið samband við Sr. Pétur Ragnhildarson, petur.ragnhildarson@kirkjan.is.

Titilmynd fréttarinnar af Fella- og Hólakirkju tók Kristján Söebeck.