Kæru vinir,

Við verðum því miður að fresta haustferðinni í eldri borgarastarfinu ótímabundið vegna veðurs. Við stefnum á að fara í hana síðar í okt og halda þeirri dagskrá sem var búið að kynna.

Á morgun verður því hefðbundin dagskrá í kirkjunni.

Kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjón Steinunnar djákna. Eftir stundina verður boðið upp á súpu og svo hefst félagsstarf eldri borgara í kjölfarið.

Kær kveðja, Pétur og Jón Ómar.