Næsta föstudag, 27. október, er karlakaffi kl. 10:00.
Gestur okkar að þessu sinni er Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði sem er landsmönnum kunnur eftir fjölmargar kosningavökur í sjónvarpinu í gegnum tíðina. Ólafur flytur erindi og svo verða skemmtilegar umræður.
Kaffi, vínarbrauð og gott samfélag.

Ólafur Þ. Harðarson er íslenskur stjórnmálafræðingur og prófessor emeritus við Háskóla Íslands.