Á öðrum sunnudegi í aðventu, 10. des næstkomandi, verður aðventustund barnanna kl. 17:00.

Sr. Pétur Ragnhildarson leiðir stundina ásamt Nönnu Birgisdóttur Hafberg æskulýðsfulltrúa.

Barnakór Hólabrekkuskóla leiðir tónlistina undir stjórn Diljár Sigursveinsdóttur. Undirleikari er Arnhildur Valgarðsdóttir organisti.

Kveikt verður á Betlehemskertinu á aðventukransinum.

Jólasveinn kemur í heimsókn og gefur börnunum góðgæti.

Létt og skemmtileg aðventustund sem kemur öllum í jólaskap.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Barnakór Hólabrekkuskóla syngur