Á þriðja sunnudegi í aðventu, 17. des kl. 17:00, verður stund sem hefur fest sig í sessi undanfarin ár og nefnist Jólasöngvar við kertaljós.

Þar verður hugljúf og hátíðleg jólatónlist í forgrunni sem Kór Fella- og Hólakirkju leiðir ásamt Matthías Stefánssyni fiðluleikara.

Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari og prédikar.

Eftir stundina verður boðið upp á ristaðar möndlur inn í safnaðarheimili sem eru gerðar á staðnum.