Kæru vinir,

Sóknarnefnd, prestar og starfsfólk Fella- og Hólakirkju óska ykkur gleðilegra jóla og bjóða ykkur velkomin í aftansöng og miðnæturguðsþjónustu á aðfangadagskvöld og hátíðarmessur á jóladag og nýársdag í kirkjunni ykkar, Fella- og Hólakirkju.

 

Aðfangadagur

Aftansöngur kl. 18

Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari og prédikar.

Kór Fella-og Hólakirkju syngur.

Xu Wen og Fanný Lísa Hevesi syngja einsöng.

Reynir Þormar Þórisson leikur á saxafón.

Organisti: Antonía Hevesi.

 

Miðnæturjólastund kl. 23:30.

Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar og prédikar.

Íris Rós Ragnhildardóttir og Jóhanna Elísa Skúladóttir syngja og leiða tónlistina.

 

Jóladagur

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.

Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson þjónar fyrir altari og prédikar.

Kór Fella-og Hólakirkju syngur.

Inga J. Backman og Fanný Lísa Hevesi syngja einsöng.

Reynir Þormar Þórisson leikur á saxafón.

Organisti: Antonía Hevesi.

 

Nýársdagur

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.

Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar fyrir altari og prédikar.

Kór Fella-og Hólakirkju syngur.

Reynir Þormar Þórisson leikur á saxafón.

Organisti: Guðný Einarsdóttir.

 

Á gamlárskvöld verður einnig aftansöngur í Breiðholtskirkju kl. 18 þar sem sr. Jón Ómar þjónar fyrir altari.

 

Við hlökkum til að sjá ykkur um hátíðarnar í Fella- og Hólakirkju.