Næsta föstudag, 26. janúar, er karlakaffi  í Fella- og Hólakirkju kl. 10:00.

Gestur okkar verður Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair og framkvæmdastjóri hjá Isavia. Jón situr í dag í stjórnum ýmissa félaga og er meðal annars formaður íþróttafélagsins Fjölnir í Grafarvogi. Það verður gaman að hlusta á hann og ræða málin.

Þar sem það er bóndadagurinn á föstudaginn verður boðið upp á pönnukökur með rjóma með kaffinu.

Sjáumst á föstudaginn í Fella- og Hólakirkju.