Á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar, 3. mars, verður æskulýðsguðsþjónusta kl. 17:00.

Sr. Pétur Ragnhildarson leiðir stundina ásamt Nönnu Birgisdóttur Hafberg æskulýðsfulltrúa og fleiri leiðtogum úr barna- og æskulýðsstarfi Fella- og Hólakirkju.

Íris Rós Ragnhildardóttir syngur og leiðir tónlistina.

Fermingarbörn taka þátt í stundinni og máta fermingarkyrtla að henni lokinni.

Smákökur, djús og kaffi í safnaðarheimilinu eftir stundina.