Skírdagur 28. mars

Fermingarmessa kl. 11:00. Sr. Jón Ómar Gunnarsson og sr. Pétur Ragnhildarson þjóna. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir tónlistina. Organisti er Kristín Jóhannesdóttir.

Föstudagurinn langi 29. mars

Stabat Mater Dolorosa – María stóð við krossinn eftir Giovanni Battista Pergolesi (1710-1736) kl. 14:00. Kristín R. Sigurðardóttir og Svava Kristín Ingólfsdóttir flytja verkið. Arnhildur Valgarðsdóttir leikur á píanó og Hjörleifur Valsson á fiðlu. Sr. Pétur Ragnhildarson leiðir stundina. Enginn aðgangseyrir – allir velkomnir.

Páskadagur – 31. mars

Hátíðarguðsþjónusta kl. 9. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur organista. Að guðsþjónustunni lokinni verður kirkjugestum boðið upp á heitt súkkulaði og til morgunverðar í safnaðarsal kirkjunnar.