Aðalsafnaðarfundur Fella- og Hólasóknar verður haldinn í safnaðarsal Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 9. apríl og hefst kl. 17:30. Á dagskrá fundarins verða lögbundin aðalfundarstörf og önnur mál.

Rétt til fundarsetu eiga allir þeir sem búa í Fella- og Hólahverfum í Reykjavík og eru skráðir í þjóðkirkjuna.

Verið velkomin og takið þátt í mótun safnaðarstarfs kirkjunnar okkar!

Kveðja sóknarnefnd.

Sóknarnefndarkonur undirrita ársreikning safnaðarins.