Þriðjudaginn 3. september hefst eldri borgarastarfið í Fella- og Hólakirkju með kyrrðarstund kl. 12:00.
Umsjón með stundinni hefur Steinunn djákni og Arnhildur organisti.
Eftir stundina verður boðið upp á sveppasúpu í safnaðarsalnum.
Í eldri borgarstarfinu fáum við góða gesti en Arnhildur organisti mætir ásamt félögum úr kór Fella- og Hólakirkju. Þau ætla að leiða okkur í söngstund og gleði.
Einnig verður dagskrá vetrarins kynnt og haustferð sem verður farið í um miðjan september.
Verið hjartanlega velkomin.