Sunnudaginn 22. júní verður gönguguðsþjónusta í Breiðholtinu, en þá verður gengið frá Breiðholtskirkju kl. 10 sem leið liggur upp í Fella-og Hólakirkju undir leiðsögn Ólafar Sigurðardóttur, en hún hefur aflað sér talsverðar þekkingar á sögu og uppbyggingu Breiðholtsins. Guðsþjónustan hefst um kl. 11 eða þeagr göngugarparinir koma á áfangastað.  Sr. Steinunn Anna Baldvinsdóttir, þjónar og predikar. Organisti verður Guðný Alma Árnadóttir, kór kirkjunnar syngur. Eftir guðsþjónustuna býður sóknarnefndin upp á léttar veitingar.