Allra heilagra messa kl. 20:00.

Sr. Pétur Ragnhildarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Bjarka Geirdal.

Friðrik Karlsson gítarleikari og Matthías V. Baldursson tónlistarstjóri Fella- og Hólakirkju flytja hugljúfa íhugunartónlist eftir Friðrik Karlsson í bland við þekkta sálma sem útsettir eru sérstaklega fyrir þessa stund. Sérstakur gestur verður söngkonan Drífa Nadía Thoroddsen.

Minningarstund látinna ástvina fer fram í guðsþjónustunni við kertaljós.

Breiðholtskirkja og Fella- og Hólakirkja standa saman að stundinni. Verið hjartanlega velkomin.