Á fyrsta sunnudegi í aðventu, 30. nóv kl. 20:00, verður aðventukvöld í Fella- og Hólakirkju.
Kór Breiðholtsprestakalls, Lögreglukórinn og VÆB flytja jólatónlist undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra.
Guðrún Hafsteinsdóttir flytur aðventuhugvekju.
Sr. Pétur Ragnhildarson sóknarprestur leiðir stundina ásamt Steinunni Þorbergsdóttur djákna.
Aðventukvöldið endar á samsöng við kertaljós eins og hefð er fyrir þar sem kirkjugestir synga Heims um ból.
Eftir stundina verður boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur í safnaðarsalnum í boði sóknarnefnda Fella- og Hólakirkju og Breiðholtskirkju, en kirkjurnar standa saman að aðventukvöldinu.
Verið hjartanlega velkomin á þessa stund sem kemur öllum í jólaskap.