Næsta sunnudag verður ekki messa í Fella- og Hólakirkju.
Í Breiðholtskirkju verður hins vegar sameiginleg helgistund fyrir báðar kirkjur sem nefnist óskalagastund jólanna. Þar ætlum við að syngja inn jólin kl 11:00. Sr. Bryndís Malla Elídóttir prófastur leiðir stundina og Helgi Hannesar leikur undir söng. Hvaða jólalag eða sálm langar þig að syngja?
