Næsta sunnudagskvöld verður kvöldmessa í Fella- og Hólakirkju.

Sr. Pétur Ragnhildarson sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar.

Sönghópurinn Raddadadda syngur og leiðir tónlistina undir stjórn Matta tónlistarstjóra. Sungin verða lög eftir konur í tilefni af konudeginum.

Eftir stundina verður boðið upp á vöfflur sem karlar úr sóknarnefndinni útbúa.

Verið hjartanlega velkomin.