Næsta sunnudag verður kvöldmessa í Fella- og Hólakirkju sem verður með æskulýðsþema enda æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Fermingarbörnin taka virkan þátt í stundinni.

Sr. Pétur Ragnhildarson leiðir stundina og Íris Rós og Jakob Freyr leiða tónlistina.

Messukaffi eftir stundina. Verið hjartanlega velkomin.