Næsta sunnudag verða tvær messur í Fella- og Hólakirkju.
Venju samkvæmt verður kvöldmessa kl. 20:00. Þar sem sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari og Íris Rós, Ragnhildur og Birgir leiða tónlistina.
Fyrr um daginn kl. 11:00 verður einnig guðsþjónusta í samstarfi við frímúrarastúkuna Mími. Frímúrarakórinn syngur og leiðir safnaðarsönginn og Matthías Baldursson tónlistarstjóri kirkjunnar annast undirleik. Mímisbræður munu jafnframt lesa ritningarlestur og bænir í messunni en sr. Pétur Ragnhildarson sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl. 11:00 í umsjón Ástu og Pálínu. Á dagskránni er dótadagur.
Það verður því nóg um að vera næsta sunnudag í Fella- og Hólakirkju og geta kirkjugestir valið á milli messu kl. 11 eða 20, þó að sjálfsögðu megi mæta í báðar 🙂
Verið velkomin til kirkju.